stundum
stundum hef ég ekkert að segja og skrifa samt helling um nákvæmlega ekki neitt. ég skrifar um hluti sem engin nennir að lesa um og ég gleymi því um leið og ég legg frá mér tölvuna.
svo á hinn veginn, þá hef ég stundum helling að segja en veit ekki alveg hvernig ég á að koma orðum að því. þeas þá skrifa ég helling sem engin skilur því æsingurinn er það mikill að orðin og setningarnar verða bara vitleysa þegar ég reyni að koma því frá mér.
svo líka kemur fyrir að mig langar að skrifa helling en langar samt ekkert að hver sem er geti lesið það, er enn brenndur síðan að fyrir einhverjum árum að þá stal dv færslu frá mér og birti í blaðinu hjá sér. eeekki alveg það sem ég vil aftur. kannski samt engin hætta á því þar sem engin les þetta hvort eð er. sem er fínt því þá er engin að kvarta yfir því að ég sé ekki að skrifa neitt hérna reglulega.
en ég fór í gær á fjórhjól og síðan í rafting. fjórhjóladæmið var hörmung, þeas fengum bara að keyra á ca 35 kmh og það er ekki gaman. hinsvegar var raftingið algjör snilld og alltaf gaman að henda vælukjóum útí ískalda ánna.